|
|
01.08.2006 19:45:40 / NannaDal
Þið draumaráðninga fólk þarna getið reynt ykkur á þessum
Man ekki hvernig draumurinn byrjaði en var semsagt að ég
fékk vinnu sem ég gat ekki sagt nei við, fékk ekki að ráða hvort ég
tæki vinnuna eða ekki. En semsagt vinnan var að ég hefði
þurft að fara og ferðast um allan heim í heilt ár án þess að koma
nokkurn tímann heim. Og það sem ég man best eftir var að ég
var að reyna að ákveða hvort ég ætti að taka Samönthu með mér
(mátti það alveg í draumnum) og Chris myndi missa af heilu ári með
henni, eða vera ekki sjálfselsk og skilja hana eftir hjá Chris, sem
þýtti þá að ég fengi ekki að sjá hana í heilt ár Leið svo
hrikalega illa í draumnum að reyna að ákveða hvort ég skildi gera
því ég gat ekki sagt nei við vinnunni, gat ekki hugsað mér að sjá
ekki Samönthu í heilt ár eða að Chris gæti ekki séð hana í heilt
ár. Líður ennþá bara illa að hugsa um það Verðið að reyna
að ráða þennan fyrir mig, btw ég tók aldrei neina ákvörðun í
draumnum um hvað ég myndi gera.
Annars er búin að vera þvílíkur ands....., helv......, fjand...
hiti hérna seinustu 3 vikur eða svo Hefur ekki orku
til að gera neitt í svona hita, og svo er Skotland ekkert búið
fyrir svona hita, getur ekki farið neins staðar til að reyna að
kæla sig niður. Búin að heyra um nokkra með hitaslög og var
komin nokkuð nálægt einu sjálf um daginn. Annars held ég að
það sé best að vera bara krakki eins og Samantha í svona
veðri. Litla laugin hennar er búin að vera notuð meira þessar
þrjár vikur en öll önnur heil ár. Og hún er búin að vera að
leika sér í kaldri sturtu heilmikið líka Öfunda hana oft
að geta verið bara berrössuð. Annars er þetta að skána núna,
búin að fá smá vind núna sem hjálpar heilmikið og svo er farið að
rigna líka aftur. Annars veit ég ekki hvort að Chris sé
ánægður með það, þar sem í seinustu viku sló hann grasið eftir að
hafa ekki gert það í 2 vikur og það var varla neitt gras til að slá
Meira að segja orðið hálf gult. Annars reif hann upp
allt blómabeðið fyrir utan húsið, engin smá munur. Erum
reyndar ekkert búin að planta neitt í staðinn en lítur samt miklu
betur út, þar sem maður var hættur að sjá neinar plöntur fyrir
þistlum.
Læt þetta duga fyrir ykkur í bili, Samantha byrjar aftur á
leikskólanum á morgun svo vonandi verð ég duglegri að skrifa 
Hlakka til að heyra draumaráðningarnar 
Nanna
»
10.07.2006 08:57:17 / NannaDal
ekki ég en samt ánægð að það varð ekki heimsendir 
Búið að vera mikið að gera hjá mér í júní. Mamma og Bragi
komu og voru í tvær vikur, fórum auðvitað á alla túristastaðina,
kastalann og minnismerkið og sollis. Og svo komu Heiða og
Ólína en þær voru búnar að sjá alla túristastaðina svo ég fór bara
með þær í búðir og jú tívolí, sem kom í bæinn akkúrat vikuna sem
þær voru Alltaf gaman að fá góða gesti, takk allir fyrir komuna

Svo fórum við í sirkus á fimmtudaginn með Samönthu sem var alveg
þrælgaman líka, reyndar var Samantha orðin drulluþreytt eftir
tveggja tíma show, meira að segja trúðarnir voru ekki eins
spennandi á endanum 
Svo fer Samantha næstu helgi til Dundee til að vera hjá ömmu
sinni þar Er svosem nóg að gera hérna heima til að stytta
sér stundir, hef ekki mikið verið að þrífa með húsið fullt af
gestum og svo búin að vera þvílík hitabylgja síðan allir fóru að
maður getur varla hreyft sveittan rassinn En veðrið orðið
eðlilegt aftur með rigningum og blíðu svo maður getur farið að gera
eitthvað 
Lifið heil
Nanna
»
05.06.2006 08:31:22 / NannaDal
»
19.05.2006 09:24:36 / NannaDal
»
18.05.2006 18:55:15 / NannaDal
»
17.05.2006 09:36:40 / NannaDal
»
12.05.2006 09:16:35 / NannaDal
Búin að vera alveg ágæt vika hérna Tengdó búin að vera
allt í lagi meira að segja Alveg ágætt að koma heim eftir
vinnu og þurfa ekki að elda fyrir Chris, þar sem hún bauðst
alltaf til þess Og húsið var alltaf svo fínt þegar maður
kom heim að maður gat bara sest niður og slappað af, þarf sennilega
að vaska allt uppúr skápunum þegar hún fer en er að verða vön
því Ótrúlegt hvað maður verður fljótt latur
samt, 2 kvöld í þessarri viku er ég búin að fá far heim eftir vinnu
en á miðvikudaginn þurfti ég að labba heim og það bara virtist vera
svo erfitt, þangað til ég lagði af stað Svo þarf ég að
reyna að skilja eitthvað í þessum skattaafslátti þegar ég fæ
útborgað í dag, held að ég þurfi að hringja í Skattstofuna aðra
hverja viku þegar ég fæ borgað til að láta þá vita hvað ég fæ, þar
sem það verður auðvitað mismunandi hvað ég fæ útborgað, og vil ekki
lenda í því að þurfa að borga hellings upphæð til baka 
Annars fékk ég bréf á leikskólanum í gær. Eru að bjóða
Samönthu 2 og hálfan tíma á dag mán-fös, er núna bara
mið-fös. Byrjar í ágúst, þarf sennilega meiri frítíma eftir
maður verður háaldraður híhíhí En þetta er allt frítt
svo auðvitað tekur maður þá tíma, sérstaklega meðan hún hefur svona
gaman af því að fara. Annars er ein "spýtan" hennar farin að
vaxa, svo ég hef eitthvað vit á garðyrkju, eða kannski var það bara
Glæðirinn hans pabba sem bjargaði því 
Læt þessa lesningu duga í bili, er að vinna alla helgina svo
ekki búast við miklu bloggi 
»
07.05.2006 20:41:52 / NannaDal
»
06.05.2006 12:58:17 / NannaDal
heldur betur, brann á bakinu í gær Var að reyta
illgresi í gær til að geta plantað "spýtunum" hennar Samönthu, tók
ekki nema um hálftíma en mér tókst nú samt að brenna pínu, en er
bara pínu svo ég finn ekkert fyrir því Samantha fékk
"spýturnar" sínar á mánudaginn og ég er búin að lofa henni síðan að
planta þeim, hefur bara aldrei verið almennilegt veður. Er
svona blackcurrent runni (veit ekki hvað berin heita á íslensku)
sem hún fékk fyrir að kaupa blackcurrent djús. Svo þegar hún
vaknaði í morgun vildi hún náttúrulega endilega kíkja út til að sjá
hvort það væru komin ber híhí en við fáum engin náttúrulega fyrr en
eftir 2 ár Vona að hún þurfi ekki að tékka á hverjum
degi í 2 ár híhí.
Fer að vinna í kvöld og annað kvöld, gott að fá helgar, fólk
gefur meira þjórfé þá
Best að fara elda hádegismat fyrir Chris, hann var að koma heim
úr vinnunni
»
04.05.2006 19:14:31 / NannaDal
Gleymdi alveg að nefna það í gær en vissuð þið að klukkan og
ártalið varð
01:02:03,04.05.06
klukkan 3 sek. 2 mín. yfir eitt seinustu nótt 
»
03.05.2006 13:05:31 / NannaDal
Jæja fyrsti vinnudagurinn búin Gekk bara mjög vel, var
bara mest kaffi og te í morgun og samlokur hvort eð er, og hef
unnið með kaffivél eins og þau hafa svo það gekk vel. Hún
ætlar meira að segja að hafa mig eina á morgun, svo ég hef ekki
verið það slæm Allt fastakúnnar þarna svo að andrúmsloftið
var alveg frábært og hálf fjölskyldan vinnur þarna, svo þetta
minnti mig pínu á Bjarkarlund Nema bara að
veitingastaðurinn er jafnvel minni.
Samantha var samt ekkert voðalega ánægð í morgun að vera skilin
eftir hjá pabba sínum, en viss um að hún jafni sig á því þegar hún
venst því. Og verð líklega meira á kvöldvöktum svo hún verður
farin að sofa þá.
Annars ekkert annað héðan, er alveg frábært sumarveður svo við
Samantha ætlum að reyna að gera eitthvað í garðinum í dag.
»
01.05.2006 16:25:50 / NannaDal
»
28.04.2006 17:54:32 / NannaDal
»
26.04.2006 08:32:07 / NannaDal
Vúhú, það tókst, eftir allt þá þurfti ég ekkert að skrá í sirkus
Var bara erfitt að muna kennitöluna aftur 
Varla búin að vera heima seinustu daga. Fór í viðtal á
laugardaginn og fer í annað á morgun, fæ ekkert í marga mánuði og
tvö koma á sama tíma
Ég og Samantha fórum í heimsókn til Jerute og Kotrynu á
mánudaginn og ætluðum með dömurnar í leikhús, en þegar við komum á
staðinn var búið að aflýsa Voru bara 3 aðrir sem ætluðu að
fara og það var ekki nóg. Mikil óhamingja á leiðinni
heim. Samönthu langaði að fara með Kotrynu útá róló en þegar
hún vildi það ekki hélt Samantha að hún vildi ekki vera vinkona
hennar svo það var aftur mikill grátur 
Fórum svo til læknis í gær, litla er búin að vera kvarta yfir
maganum síðan hún fékk flensuna um daginn og læknirinn heldur að
þetta sé bara smá harðlífi aftur Og Samantha, karlremban,
var ekkert of ánægð að fá konulækni En sætti sig við það
þegar hún leyði henni að hlusta á hjartað í sjálfro sér
Veit ekki hvaðan hún hefur þessa karlrembu 
Annars ætla ég að taka það rólegt þessa vikuna, búin að labba
svo mikið seinustu daganna að ég vakna með þreyttar fætur
Bara versta að veðrið er svo gott að það er erfitt að hanga bara
heima, hélt að ég myndi nú aldrei kvarta yfir góðu veðri 
Læt ykkur vita hvernig viðtalið gengur á morgun, allir að krossa
fingurnar kl 10:30 á morgun fyrir mig 
»
16.04.2006 18:51:23 / NannaDal
Búin að vera alveg frábær dagur í dag
Vöknuðum ekki fyrr en um 8 sem var alveg fínt að fá að sofa
aðeins lengur Og Samantha fór að leita að eggjunum og var
alveg að verða pirruð þegar hún loksins fann eitt híhí.
Földum 5 stór egg og 3 kinder egg svo það tók hana smá tíma
Ekki að öll eggin hafi verið hennar, ég átti eitt og Chris
eitt og svo var eitt af því stóra með bara leikföngum í, svo þetta
var ekkert alltof mikið súkkulaði sem hún fékk Annars er
hún svo góð að hún er búin að gefa okkur alveg hellings súkkulaði,
man aldrei eftir að hafa boðið mínum foreldrum páskaegg þegar ég
var krakki
Fórum með samlokur og egg í kastalann og sátum þar með okkar
litla picnic, alveg frábært veður fyrir það líka Og svo
var alls konar fyrir krakka í kastalanum, þegar við mættum var
brúðuleikur, svo var uglusýning, sögumaður og galdramaður. Og
ég fékk að hjálpa galdramanninum Samantha var nú ekki
ánægð þegar hann reyndi að skera af mér einn puttann og bara hætti
að horfa á hann En klappaði kanínunni sem hann var með
eftir sýninguna. Samantha greyið var orðin drulluþreytt eftir
galdramanninn og vildi ekkert sjá meira, vildi bara fara heim, sem
við gerðum. Ekkert smá ánægð með hana, klukkan var orðin 4
þegar við loksins komum heim og við þurftum sama og ekkert að halda
á henni Og þetta er alveg 1 og hálfur tími sem það tekur
að labba upp að kastalanum 
Svo eldaði ég ekta roast beef þegar við komum heim, með
Yorkshire pudding og grænmeti nammi namm Svo þetta er búin
að vera alveg ágætur dagur 
Vona að allir aðrir hafi átt góðan páskadag
Nanna galdrakallahjálprari 
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|